Páskafrí.....

Páskafrí......... handan við hornið....... jibbí........... bara 2 dagar í páskafrí..... já stundum er gott að vera kennari og fá páskafrí........  það er mikið um að vera í skólanum þessa viku.... árshátíð á morgun og hinn og síðan langþráð  páskafrí (búin að bíða eftir því síðan jólafríinu laukShocking) .... og skíðavika framundan og voða gaman.... súkkulaði og vera samanWink (skáldleg híhí)... 

já þessa dagana eru allt á fullu og sköpunarkrafturinn leikur lausum hala í GÍ... það er alltaf jafn spennandi að sjá hvað hver árgangur töfrar fram á leiksviðið... aldrei eins frá ári til árs.... og alltaf er hver árshátíð að toppa þá síðustu.....Tounge

reyndar hefur árshátíðarundirbúningurinn verið smá gloppóttur hjá 4. bekk...  (kennarabörnin verða víst líka veik við þurft að vera heima til skiptis) ....og því voru við í seinnalagi að byrja undirbúninginn og satt best að segja hélt ég að ekkert yrði af atriðinu á mánudaginn.... allt gekk á afturfótunum á æfingu ... vægast sagt... sá fyrir mér að þetta yrði hrein hörmung... 50 krakkar á sviði og fát og fum í gangi... strákarnir misstu sig algjörlega í pot og klíp og fiktuðu í öllu sem ekki mátti snerta, skriðu undir tjöldin og földu sig í hornunum... æææææ þeir sem eru utan við sig voru komin lengra en út á þekju.... heyrnaleysið nær algjört og tilkynningarskyldan mætt.... þessi sagði... þessi gerði... þessi....... já sem sagt martröð kennarans í hnotskurn.... allir að gera það sem ekki á að gera....

ennnnn... það er von... þegar við komum inn í stofu voru hlutirnir ræddir og síðan mættu allir bekkirnir saman inn í eina stofu og renndum gegnum textann nokkrum sinnum .... þar til allt gekk snurðulaust.... og það er von..... æfingin í dag gekk ótrúlega vel miðað við mánudaginn og nokkur mynd komin á verkið.... já kannski ekki tær snilld en næstum þvíWoundering.... krosslegg bara fingur og tær og þá gengu það glatt... enda börin í 4. bekk algjörir snillarHalo 

Annirnar í skólanum fara samt að hluta fram hjá mér...  skíðakappinn er veikur og ég drusluleg, hef t.d. ekki mætt í ræktina í 2 daga ÓMGPouty ... Skíðakappinn var lagður inn á mánudaginn til öryggis vegna þess að hann fékk svima og leið mjög illa. Hann var rannsakaður hátt og lágt, en sem betur fer fannst ekkert og því talið að þetta sé flensa sem er að hrjá hann.... en bara frábært að það sé fylgst svona vel með honum og engin áhætta tekin eftir slysið um daginn....  vona bara að hann fari að hressast svo við komust á skíði um páskanaCool  Í gær var ég heima með skíðakappanum og spurning um hvort svaf meiraSleeping... við nutum þess að skríða beint upp í rúm um leið og við komum heim að spítalanum og sváfum langt fram á daginn...  og tókum okkur síðan vænan miðdegislúr og vorum samt komin snemma í rúmið í gærkveldi.... það er greinilega bara fyrir fullfríska að vera á sjúkrahúsiWhistling.... Í dag fór ég í vinnuna til að sjá um árshátíðaratriðið með krökkunum.... en fékk að fara fyrr heim enda leið mér eins og iðnaðarmenn væru í heimsókn eftir velheppnað laugardagsdjammSick... og ég sem er að komast í páskafrí...   en er hressari núna ...

Kveðja Helga  á leið í páskafrí.................. jibbí


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband