....páskaleti... með meiru:)

Í dag var lífinu tekið með ró....reyndar þurfti Óli að vinna í morgun og þegar hann fór á fætur fyrir 5 í morgun vaknaði lillan og ætlaði út með pabba sínum en sem betur fer sofnaði hún strax aftur og við sváfum langt fram á daginn........Sleeping  ekki smá notalegt.... ég var ný sofnuð í gærkveldi þegar einn nágranni minn var að koma heim frá útlöndum og var ekki með lyklana af útihurðinni og valdi auðvita að vekja mig (ekki smá vinsæl þar!!!) til þess að komast inn......og auðvita er ég hin fullkomni nágranni og hleypti greyinu inn...... en hugsanir mínar voru ekki alveg fullar af náungakærleik á þessari stundu.... h... orðið kom upp í hugann.... en "vandað kristilegt uppeldi mitt" var yfirsterkara lönguninni til að vera fúll á móti eða réttara sagt fúl á efrihæðinniGrin og auðvitað er nágrana mínu fyrirgefið... allir geta gert mistök og lykillinn að útidyrahurðinni heima hjá sér ekki það fyrsta sem maður pakkar niðurGetLost vertu velkomin heim......... já eftir þessa uppákomu sofnaði mín ekki fyrir en seint og um síðir og því gott að geta sofið út... og ekki verra að fara síðan í 1 stk. fermingarveislu síðdegis..... ummmm frábært.....  ekkert að elda.... bara snarl........ og slappa af .... er í fríi I love it..................

Skíðasvæðið var lokað vegna veðursErrm.... en spáin fyrir morgundaginn er betri og á meðan Óli vinnur fyrir mér (ég er sko kennari með fyrirvinnu FootinMouth) ætla ég að skella mér á skíði með börnunum...

kveðja Helga lata

p.s. ég held sveim mér þá að ég sé með alvarlegt afbrigði af húsmóðurmetnaðarleysi þessa dagana .... ÓMG ég er nú í páskafrí.....  hvað er smá ryk á milli vina??????


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Hæ það var ekki erfitt að finna þig he he kv. frá Bolungarvík

Sigríður Línberg (IP-tala skráð) 1.4.2008 kl. 06:41

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband