2.5.2008 | 22:51
Má ekki sjúga upp í nefið...
Já mín er enn með hellur fyrir eyrunum síðan í Hlíðarfjalli um síðustu helgi... ekki gott mál já ... (og þó ... stundum er gott að heyra ekki allt
) ég fór því í dag til læknis... og hann kíkti í eyrun og sá já að þar voru hellur á ferð... og svo bannaði hann mér að sjúga upp í nefið
... það er nebbalega kvebbi í nebba ... og síðan þá er ég búin að standa mig ótrúlega oft að því að sjúga upp í nefið...
356 skipti núna... hafði bara ekkert tekið eftir því að ég væri að sjúga upp í nefið... óbój Helga þú verður að hætta þessu.... en ég er að gera mitt besta ... já ég fékk líka nasasprey hjá honum og nú að að bíða eftir að það virki
... og ég sé fyrir mér Ladda á góðum degi í gervi Magnúsar lýsa þessu ástandi mínu... og hún beið og hún beið og hún beið og hún beið og............. hí hí Magnús er mitt uppáhald.... kannski fylgir það bara nafninu... einn af uppáhalds bræðrum mínum hann Magnús ætlar að kíkja í heimsókna til Ísafjarðar á morgun... með fullt af stelpum með sér.... um vafinn kvenfólki það get ég svarið.... já án gríns, hann er með 1 stk. norskt kvennablaklið og 1 stk. íslenskt kvennalandslið í blaki .... geri aðrir betur... hlakka til að hitt hann og horfa á eðalblak á morgun... og krakkarnir hlakka mikið til að hitta frænda sinn hafa ekki séð hann síðan í fyrrasumar... já hér á ísó er öldungablakmót í fullum gangi... svaka gaman... bærinn fullur af fólki sem er á fullu að spila blak af fullum krafti... við mæðgurnar kíktum á það í dag og ég hitti fullt af fólki sem ég þekki og hef ekki séð í mörg ár... ekki smá gaman ... Mikið klæjaði mig í fingurna að vera með... finna gleðina af velheppnuðu samspili og smassi... hver veit nema maður skelli sér aftur í blakskóna
....
Kveðja Helga sem ætlar ekki að sjúga upp í nefið

Athugasemdir
Blessud Helga...Eg datt inna bloggid thitt af tilviljun (eg les alltaf bloggid hennar Stinu Jo sem er bloggvinurs Omars Pe sem er bloggvinur thinn) -alltaf gaman ad rekast a gamla skolafelaga thott thad se bara i gerfiheiminum! Bestu kvedjur a vestfirdina fra stigvelalandinu
Rut (IP-tala skráð) 6.5.2008 kl. 09:56
Gaman að fá kveðju frá þér Rut, mér er stundum hugsað til Napolíferðarinnar okkar forðum dag með þer og nöfnum mínum í taxanum
Kveðja Helga
Helga Aðalsteinsdóttir, 8.5.2008 kl. 17:29
Haha, ja merkilegt ad eg skyldi fast til ad flytja til landsins med tha reynslu ad baki! Til allrar hamingju er nordrid heldur blodkaldara en sudrid her a stigvelinu, og eg hef ekki lent i svona leigubil aftur! En isinn og maturinn er jafn godur og vid upplifdum hann (nema natturulega thad sem eg sulla sjalf -enda er eg heltekin somu husmaedrametnadarleysi og virdist rada rikjum i hofudstad vestfjarda!), svo eg kvarta ekki!
Rut (IP-tala skráð) 11.5.2008 kl. 12:42
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.