25.5.2008 | 21:48
Herbergið tekið í gegn hjá fermingarbarninu.
Helgin hefur farið í að mála herbergi unglingsins og gera fínt fyrir fermingu. Málningin er komin á veggin en eftir að fara gegnum dótið og flokka, hvað á að setja upp aftur, hvað á að geyma og hverju á að henda????? Það er höfuðverkurinn og bíður morgundagsins..... ÓMG hvað maður getur safnað að sér miklu d...... Nú stendur unglingurinn á tímamótum... er að breytast úr barni í ungmenni...og þá eru áhugamálin að breytast.... hún er ekki lengur mjög spennt fyrir pleymó, barbí, pet og hvað þetta allt heitir sem var mjög heitt fyrir stuttu síðan... nú þarf að flokka allt og pakka niður fyrir lilluna.......... já frumburðurinn er að fullorðnast.........
Hún á að fá ný húsgögn í herbergið í fermingargjöf, en það verður að bíða þar til í sumar þegar við komumst í IKEA eða RL magasínið... því miður er okkar góða húsgagnaverslun á Ísó ekki með neitt sem passar þar er hægt að fá flott rúm og mjög fín sófasett og svoleiðis ...en ekki til neinar sætar hillur eða skrifborð ...
Kveðja Helga með flokkunarkvíða.... hvar getur maður gert við allt þetta drasl sem sækir að manni????
p.s. unglingurinn er efni í safnara... hvaðan skildi hún hafa erft það
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.